Álfheiður Ingadóttir, 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður
Álfheiður er fædd í Reykjavík 1. maí 1951.
Fjölskylda: Í sambúð með Sigurmar Kristjáni Albertssyni (f. 7. maí 1946) hæstaréttarlögmanni, sonur þeirra er Ingi Kristjan Sigurmarsson nemi í Listaháskólanum (f. 12. febrúar 1991).
Laun:
Þingfararkaup frá 1. júní 2011: kr. 545.480,-
Varaforseti, 15% álag: kr. 81.822,-
Formaður nefndar, 15% álag: kr. 81.822,-
Hlunnindi:
Alþingi greiðir síma- og tölvukostnað, starfskostnað: kr. 66.400.- og ferðakostnað kr. 61.400.-
Eignir
Helmingur í íbúðarhúsnæði fjölskyldunnar og sumarhúsinu Vegamótum í Flatey á Breiðafirði, eigin bifreið, hlutabréf í Plássinu ehf., félagi um rekstur Hótels Flateyjar, að nafnvirði kr. 225.000 og 20.000 króna hlutur í húsnæði Vinstri grænna í Hamraborg.
Alþingi greiðir starfskostnað, allt að 66.400 kr. á mánuði.
Hagsmunatengsl
Er varamaður í stjórn Plássins ehf., félagi um rekstur Hótels Flateyjar.
Er í eftirtöldum félögum:
Amnesty International, Blaðamannafélagi Íslands; biðfélagi frá 1987, Feministafélagi Íslands, Félagi íslenskra náttúrufræðinga, Framfarafélagi Flateyjar, Framtíðarlandinu, Hinu íslenska náttúrufræðifélagi, Hollvinum Hallargarðsins, Krabbameinsfélagi Reykjavíkur, Krafti, Landvernd, Náttúruverndarsamtökum Íslands, Samtökum hernaðarandstæðinga, Samtökum um kvennaathvarf, UNIFEM, og Vinstri grænum Reykjavík.
Álfheiður er í sambúð með Sigurmari Kristjáni Albertssyni og eiga þau saman íbúðarhús og sumarhús.

