Ragnar Frank Kristjánsson

Ragnar Frank Kristjánsson forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar

Ragnar Frank Kristjánsson er fæddur í Reykjavík 8.ágúst 1962.   Lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands,  Landlagsarkitekt F.Í.L.A.  Búsettur á Hvanneyri í Borgarfirði.

Fjölskylda: er giftur Úllu Rolfsigne Pedersen (f. 22.mars 1966)  landlagsarkitekt,  eigum þrjár dætur,  Anna Ragnarsdóttir Pedersen (f. 27.nóvember 1991) stúdent frá Menntaskóla Borgarfjarðar.  Íris  Ragnarsdóttir Pedersen (f. 10.febrúar 1995), er nemi í Menntaskóla Borgarfjarðar. Freyja Ragnarsdóttir Pedersen (f. 11.júlí 1998), nemi við Grunnskóla Borgarfjarðar.

Laun:

Lektor, laun frá Landbúnaðarháskóla Íslands: um 375.000 kr. á mánuði.

Forseti sveitastjórnar Borgarfjarðar.  117.000 kr. mánaðarlaun

Formaður Umhverfi- og skipulagsnefndar Borgarfjarðar, nefndarlaun á mánuði 14.000 kr.

Sit í stjórn Menningarráðs Vesturlands fyrir sveitarfélög Norðan Skarðsheiðar,  20.000 kr. á mánuði.

Hlunnindi:
Sveitarfélagið Borgarbyggð greiðir 7.000 kr. á mánuði í síma- og tölvukostnað.

Eignir
Helmingur í íbúðarhúsnæði fjölskyldunnar, eigin bifreið og tvö hross.

Hagsmunatengsl
Er varamaður í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (áheyrnafulltrúi Borgarbyggðar).   Er varamaður í stjórn Samband sveitarfélaga á Vesturlandi.
Er í eftirtöldum félögum:
Amnesty International, Félagi íslenskra náttúrufræðinga, Hinu íslenska náttúrufræðifélagi, Jöklarannsóknafélagi Íslands, Fuglaverndarfélagi Íslands, Félag Íslenskra landslagsarkitekta, Samtökum hernaðarandstæðinga,  Vinstri grænum Borgarbyggð,  Hestamannafélaginu Faxa,  Vinir Skaftafells.


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica