Fólkið í VG
Hér til hliðar má sjá upplýsingar um alla kjörna fulltrúa til lands og sveita auk þeirra fjölmörgu sem skipa trúnaðarstöður innan flokksins. Ef þú vilt vera virk/ur í starfi flokksins er þér bent á að mæta á fundi og viðburði auk þess sem gott er að setja sig í samband við formann þess svæðisfélags sem þú tilheyrir.
Æðsta vald flokksins liggur hjá Landsfundi sem haldinn er annað hvert ár. Síðasti Landsfundur var haldinn í mars 2009 og var hann sá stærsti hingað til í ört vaxandi hreyfingu.
Flokksráð Vinstri grænna kemur saman tvisvar á ári en það er skipað 30 landsfundakjörnum fulltrúum, kjörnum sveitastjórnarfulltrúum, alþingismönnum, varaþingmönnum, formanni Ungra Vinstri Grænna, formönnum svæðisfélaga og formönnum kjördæmisráða.
Stjórn flokksins skipa 11 fulltrúar kjörnir á landsfundi og 4 til vara. Stjórnin hittist að jafnaði einu sinni í mánuði.
Flokksráðsfundir og landsfundir eru opnir öllum félögum en auk þess eru haldnar ráðstefnur og málefnasmiðjur milli funda, en þær eru nánar auglýstar á heimasíðu flokksins og á póstlistanum.

